Leti

Ég á að vera að pakka en ég er svo latur að það nær ekki nokkurri hugsanlegri skiljanlegri átt.

Ég er að fara til London að gista í eina nótt áður en ég fer heim um kvöldið á föstudaginn. Þannig að fyrir ykkur sem eruð forvitin þá mæti ég á klakann seint á föstudagskvöldið hið 12.des. Mikið sem mig hlakkar til að gista í mínu heittelskaða rúmi og borða almennilegann heimilismat. Við félagarnir erum samt sammála um að miðað við keyrsluna síðustu mánuði þá eiga fyrstu dagarnir eftir að verða góðir svo verðum við óþreyjufullir og langar að gera eitthvað almennilegt. En þá verður rallað býst ég við.

Ég kláraði 2 verkefni, live sound dag þar sem ég var við stjórnvölinn fyrir eina hljómsveit sem mér var úthlutuð. 11 manns hvorki meira né minna, það var mjög gaman og tókst allt saman gríðarlega vel. Svo skilaði ég inn upptöku og mixi sem ég og annar félagi minn unnum að og fengum fína dóma fyrir. En þegar atvinnuhljóðmenn eru að fara yfir eitthvað sem þú hefur gert heyra þeir iðulega eitthvað sem þú gerðir þér ekki grein fyrir, sem er bara gott.

Áhugasamir vinsamlegast tjékkið á þessu, og hafið augun opin.
Ford

Andskotinn, ákkúrat núna er ég að reyna að skrifa niður á blað hvernig ég kemst á áfangastað minn í London en hvað er málið með penna og skrifa ekki þegar þú vilt það svo. Ég krassa og krassa í eitt horn og allt er í lagi en svo, ÁN ÞESS AÐ GERA NEITT VIÐ PENNANN þá flyt ég mig niður að því sem ég er að reyna að skrifa og þá neitar hann bara að virka. Þetta er eitthvað sem mér finnst jafn fáránlegt og sú staðreynd að Bretar vita ekki hvað tannlæknir er.

Ég er að hlusta á soundtrack diskana sem ég tók út af bókasafninu um daginn, þar á meðal voru 2 Simpsons diskar þannig að í heildina er ég að fara í gegnum 80+ lög úr Simpsons og mér finnst þetta ennþá fyndið þótt ég sé bara að hlusta á þetta.

Hellaður gæji, velti alltaf fyrir mér hvað sé að fara í gegnum hausinn á svona fýrum.

Ég og Maggi Berg vorum að tala saman bara í kvöld og við höfum séð það út að 50´s og 60´s árgangurinn er að taka yfir Facebook, allavega að átta sig harkalega á því hversu góður miðill þetta er til að hafa samband við fólk og hössla. Þegar eldra fólkið byrjar að deita í gegnum netið þá eru víst öll vígi fallinn. Ég man það í raun núna þegar ég segji það að ég skráði mig á breska stefnumótasíðu fyrir svona mánuði síðan til að kanna stöðu mína á markaðnum og hvert minn raungildi væri. Vert er að minnast þess að ég hef einungis verið skoðaður 1 sinni og það var af 56 ára gamalli konu sem hafði ekki verið að halda sér við í gegnum árin.
Því hef ég dregið þá ályktun að kreppan hafi í raun einnig haft áhrif á útlit mitt sem og eftirsókn eftir mér, bíð ég bara eftir því að vera tekinn eignarhaldi af ríkinu.

Talandi um eldra/fullorðið fólk, þá er það víst líka að taka yfir kvikmyndageirann, einna helst þá spennumyndirnar.

Jæja, ég þarf að fara að gera mig til, þetta gengur ekki lengur. Nema ég vilji leggja í hann á morgun meðan enga tösku og taka sénsinn á því hvort ég komist alla leið. Sem væri samt ekkert galin hugmynd þannig, smá ævintýr.

Sé ykkur eftir smá.

« Djöfull ertu óþægilegur maður..

Gerum okkar besta »

Atli Már Steinarsson

 

Þessi færsla var rituð 10. desember 2008.
Aðrar færslur sem voru ritaðar í desember 2008.

Athugasemdir

rúnar kárason

11. desember 2008

Ein nótt í London? Atli hvað ertu eiginlega að fara að gera þar?

Ford.

12. desember 2008

DAMN, hvað ég er sátt !

Skrifa athugasemd