Kæru vinir,
það birtist ekki fyrst hér. Svikin loforð, sorry með mig.
Ég geng líklegast til liðs við Füchse Berlin, þ.e.a.s ef Fram stendur ekki í vegi mínum og ég reikna ekki með að þeir geri það.
Jólin eru að koma og gleði er í hjarta, þetta er bara allt að rúlla svo vel eftir erfiðar 3 vikur undanfarið. Ég kom heim eftir 2 vikna dvöl í Þýskalandi og var lengi að ná áttum og fleira.
Evrópukeppni; ég setti stjarnfræðilegar kröfur og pressu á sjálfan mig fyrir þá leiki. Fyrri leikurinn var vægast sagt slakur og seinni var þokkalegur. Þjálfari Füchse var á fyrri leiknum og sagði við stjórnarmenn eftir leikinn að ég væri ekki reddí og þeir þyrftu að leita að öðrum í þessa stöðu. Hann vissi ekki þá að hann fengi reisupassann eftir tímabilið.
Berlín; ekkert spes, ég var búinn að sofa 2 tíma eftir smá Gummersbach djamm. Þetta lúkkar samt ágætlega. Snitzel er ekki að gera sig í þynkunni.
Landsliðið var síðan alger klassi, ég var með mikinn söknuð heim í fyrsta sinn í svona ferðum og það líklegast út af því maður var að nýfarinn að slá sér upp og svona. Landsliðið gekk hörkuvel bara og maður alltaf að stimpla sig betur inn.
Ég kom síðan heim og prófin biðu, fullt af verkefnum og fleira í vanskilum, ég með allt niðrum mig. Fjölmiðlavesen alltaf eitthvað nýtt að koma upp, ég gat síðan ekkert í leikjunum þegar ég kom heim. En nú er þetta búið, ekkert hugarangur lengur, Stúdent Füchse Kárason í toppmálum.
Jólin eru snilld, hafa alltaf verið. Gott að fá vini sína heim og geta tekið tjillið metnaðarfullt, ég skora á alla að leggja sig eins fram við að halda hópinn eins og við gerðum í sumar, þetta var besta sumar lífs míns. Ég segi það í beinni.
Þið á leið heim eða komin heim, þið komuð með jólin til mín..
fulla ferð
|
« Leti |