Hingað til hefur það verið aðalsmerki vefsins MBL.is verið hraðfærnisleg og klaufaleg vinnubrögð með áherslu á léttmeti og mötun þjóðfélagsins á slúðri, lélegum bloggurum, stafsetningarvillum og fréttastubbum. Í dag hefur þó greinilega eitthver girt sig í brók og sniðið þá lang bestu frétt sem að vefurinn hefur hingað til birt. Hún er í raun allt sem að góð afþreying getur boðið þér. Ég mun þó leyfa lesendum að dæma um það hvort að snilldina sé að rísa eða ekki. Gjörið þið svo vel
Og úr einu í nánast það sama.
Margir hafa velt því fyrir sér í áraraðir hvernig rödd Gunnars Birgissonar varð svona óhugnarlega djúp, enda er hann líklega með dýpstu rödd í heimi. Sannleikur þó alls engin gamansaga.
Gunnar var víst barinn svo hrottalega í spað fyrir nokkrum árum að hann hefur aldrei beðið þess bætur, hann getur þakkað einhverjum nokkrum aumingjum sem að gengu í skrokk á honum að hann mun alltaf hljóma einsog það sé nýbúið að sjóða hann uppúr viskíi.
Hvort ætli sé síðan verra. Að vera með svona djúpa og óskiljanlega rödd, eða hafa orðið þess valdur að samfélagið mun alla ævi núverandi bæjarstjóra kópavogs þurfa að ímynda sér hvað hann er að segja?