Fyllerí já gemmér annan drykk.
Þúsund þrumandi þorskar á þurru landi, ég er búinn að liggja í magapest alla helgina. Vítishvalir allann daginn, ég var orðinn þokkalegur og kíkti út á laugardaginn og svo bara fokkaðist allt upp á sunnudag. Spurning hvort hlöllinn á sunnudag klukkan 00.34 hafi fokkað þessu upp.
Ég er því búinn að liggja hér heima í tölvunni annars vegar og horfa á flakkarann minn hins vegar. Er búinn að skanna rjómann af öllum fjórum seríum How I met yur mother og búinn að ná mér í ofnæmi fyrir internetinu. Damn boi, þetta sökkar.
Ég fór samt að velta því fyrir mér um daginn hvort það væru einhverjir lesendur hér eftir á klakanum sem væru til í að fara aftur í laser tag? Það er gífurlega góð skemmtun og heppnaðist hópferð gifurlega vel seinast.
Hvernig væri það?